Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. maí 2022 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Neville við Richarlison: Veit hvernig þér líður
Mynd: EPA
Richarlison, leikmaður Everton, er ekki beint hrifinn af sparkspekingnum Jamie Carragher. Richarlison tók sér hlé frá því að fagna öruggu sæti Everton í deildinni og sendi pillu á Carragher.

„Þvoðu þér um munninn áður en þú talar um mig og Everton. Ég ber enga virðingu fyrir þér," skrifaði Richarlison á Twitter og merkti Carragher við færsluna.

Sjá einnig:
Richarlison hefur horn í síðu Carragher - „Ber enga virðingu fyrir þér"

Carragher hafði gagnrýnt Richarlison og sagði það löst á leik hans hversu oft hann dytti í grasið.

„Þetta hefur ekkert með hlutdrægni að gera þegar ég tala um Richarlison. Hann dettur í grasið 3-4 sinnum í leik eins og hann sé stórmeiddur og svo rífur hann sig á lappir. Þetta snýst ekki um að fá aukaspyrnu eða vítaspyrnu heldur er hann bara að gera sér upp meiðsli þegar hann er augljóslega ekki meiddur," sagði Carragher sem er fyrrum leikmaður Liverpool.

Gary Neville sem vinnur náið með Carragher hjá Sky Sports svaraði færslu Richarlison og skrifaði: „Ég veit hvernig þér líður félagi."

Carragher svaraði Richarlison líka og kom svar hans eilítið á óvart. „Ég er reyndar nokkuð hrifinn af þessu, ef Twitter hefði verið þegar ég var leikmaður þá hefði ég skotið á sérfræðinga nokkuð oft!!" skrifaði Carragher.



Athugasemdir
banner
banner
banner