20.06.13 - 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Aston Villa kaupir Antonio Luna frá Sevilla (Staðfest)

Antonio Luna (til vinstri).

Mynd: Getty Images

Antonio Luna (til vinstri).

Mynd: Getty Images
Spánverjinn Antonio Luna er genginn í raðir Aston Villa frá Sevilla og skrifaði hann undir þriggja ára samning hjá Villa.
Luna er 22 ára gamall bakvörður og spilaði hann sem lánsmaður hjá Real Mallorca á síðustu leiktíð.
,,Ég hef alltaf talið mig getað spilað í ensku úrvalsdeildinni og að fá tækifærið hjá svona sögufrægu og stóru félagi líkt og Aston Villa, með þjálfara sem er að byggja liðið upp á ungum og spennandi leikmönnum, er frábært tækifæri fyrir mig,\" sagði Luna við heimasíðu Villa.
Um er að ræða fimmtu kaup Paul Lambert, stjóra Villa, í sumar. Danski framherjinn Nicklas Helenius gekk í raðir liðsins í vikunni, en áður höfðu þeir Jores Okore, Leandro Bacuna og Aleksander Tonev skrifað undir á Villa Park.