Óvænt að Gylfi var í stúkunni - „Brotnaði niður þegar ég sá hann"

Á EM síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karólína með strákunum úr Tiltalinu.

Mynd: Stefan Marteinn - fotbolti.net

Á EM síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enn er óljóst hvort að Gylfi Þór Sigurðsson muni snúa aftur í fótbolta en hann hefur ekki enn gefið neitt út með það. Gylfi var í um tvö ár í farbanni á Englandi en rannsókn á hans máli var felld niður í apríl síðastliðnum eftir langan tíma og er hann núna laus allra mála.
Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, sem er frænka Gylfa, var í viðtali í hlaðvarpsþættinum Tiltalið á dögunum þar sem hún var aðeins spurð út í frænda sinn en hún vonast til að hann snúi aftur á fótboltavöllinn.
„Ég held að hann þurfi sinn tíma til að komast aðeins út úr þessu. Þetta er búið að vera rosalega erfitt. Ég held að þið þurfið að bíða aðeins. Hann þarf að finna sjálfur þennan áhuga koma," sagði Karólína Lea.
Gylfi er 33 ára og hefur skorað 25 mörk í 78 landsleikjum fyrir Ísland, hann á stóran þátt í því að Ísland komst á EM og HM. Hann lék síðast fyrir landsliðið í nóvember 2020. Óvíst er hvort að hann snúi aftur á fótboltavöllinn en landsliðsþjálfari Íslands, Age Hareide, segir að Gylfi verði í plönum sínum ef hann mun gera það. Gylfi er einn besti fótboltamaður í sögu Íslands, ef ekki sá besti.
Mætti á EM síðasta sumar
EM kvenna var haldið á Englandi síðasta sumar en Gylfi mætti á leiki Íslands - á meðan rannsóknin var í gangi - og sá frænku sína spila. Karólína segir að það hafi verið óvænt en skemmtilegt að sjá frænda sinn.
„Það var óvænt. Ég vissi ekki að hann væri í stúkunni og ég brotnaði niður þegar ég sá hann," segir hún. „Við fengum alltaf að hitta fjölskylduna eftir leikina. Ég er stolt af honum að hafa komið því það var auðvitað erfitt fyrir hann."
Karólína sagði jafnframt frá því í þættinum að Gylfi hefði verið helsta fyrirmynd sín í fótboltanum í æsku, ásamt Dóru Maríu Lárusdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur. Hún segist einnig hafa hoft mikið á Mesut Özil þegar hún var yngri.
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni hér að neðan.
Sjá einnig:
Myndir: Gylfi ferðaðist langa vegalengd til að mæta á völlinn