Fotbolti.net
20.07.23 - 10:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Henderson sé að svíkja marga - „Þá gaf hann svar sitt"

Jordan Henderson.

Jordan Henderson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er á leið til Sádi-Arabíu þar sem hann mun fá 700 þúsund pund í vikulaun. Hann verður einn launahæsti fótboltamaður í heimi en peningarnir í fótboltanum þar í landi eru núna ógnvænlegir.
Henderson hefur verið fyrirliði Liverpool í tólf ár og á þeim tíma hefur hann verið duglegur að standa með samkynhneigðum og öllu LGBTQI+ samfélaginu.

Caoimhe O'Neill, fréttakona The Athletic, er svekkt út í Henderson og hans ákvörðun að vilja fara til Sádi-Arabíu, lands þar sem er ekki aðeins ólöglegt að vera samkynhneigður og trans - heldur getur það verið lífshættulegt.

„Mörgum einstaklingum innan þessa samfélags líður eins og þau hafi verið svikin. Ég er ein þeirra," skrifar O'Neill.

O'Neill, sem er samkynhneigð, segist lengi hafa verið í felum en orð Henderson hafi hjálpað sér á erfiðum tímum. Orð hans hafi hjálpað mörgum. En hún segist núna vera sorgmædd þegar Henderson er á leið til Sádi-Arabíu þar sem réttindi þeirra sem eru LGBTQI+ eru svo gott sem engin.

„Að lokum, þegar gildi Henderson voru prófuð af alvöru og hann neyddist til að velja á milli siðferðis og peninga, og þá gaf hann svar sitt. Og margir munu eiga erfitt með að gleyma því," skrifar fréttakonan en hægt er að lesa grein hennar í heild sinni hérna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.