Lagði flöskuna á hilluna fyrir ári - „Var búinn með minn kvóta"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar Steingrímsson lagði flöskuna á hilluna fyrir ári síðan - hætti að drekka áfengi. Unnusta hans vakti athygli á þessu á Facebook.
Hann var spurður út í ákvörðun sína í viðtali á dögunum.
Hann var spurður út í ákvörðun sína í viðtali á dögunum.
„Ég er orðinn 32 ára, ég var búinn með minn kvóta. Pælingin var að drekka ekkert þegar ég var ungur, en ég fór því miður að drekka. Mér fannst bara komið nóg; stofna fjölskyldu og er bara sáttur við það. Ég þarf ekkert að drekka til að líða vel."
„Mér líður miklu betur, er aldrei þunnur á sunnudögum og þannig. Lífið er töluvert auðveldara. Ég taldi þetta vera rétt fyrir mig," sagði Hallgrímur Mar.
Hann er leikmaður KA og undirbýr sig fyrir seinni leik liðsins gegn Connah's Quay Nomads. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og KA leiðir með 2-0 eftir fyrri leikinn síðasta fimmtudag.
Sjá einnig:
Hallgrímur Mar framlengir við KA