Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 20. ágúst 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Guendouzi: Hárið mitt er fallegra en hjá David Luiz
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Arsenal hafa átt það til í byrjun tímabils að ruglast á nýja leikmanninum David Luiz og miðjumanninnum Matteo Guendouzi.

Báðir eru þeir með myndarlegar krullur og hárgreiðslur þeirra skera þá út úr inni á vellinum.

Guendouzi er harður á því að hann sé með betri greiðslu.

„Ég er hrifnari af hárinu mínu. Það er fallegra," sagði Guendozi léttur í bragði.

Guendouzi kom sterkur inn í lið Arsenal á síðasta tímabili eftir að félagið keypti hann á sjö milljónir punda frá franska félaginu Lorient.

Athugasemdir
banner
banner
banner