Fotbolti.net
20.08.23 - 17:11
Stefán Marteinn Ólafsson

Gunnar Heiðar: Leikur tveggja liða sem voru mjög þreytt

Auglýsing
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur

Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur

Canon

Mynd: Njarðvík

Lengjudeildin

Heitasta lið Lengjudeildarinnar um þessar mundir í Njarðvík tóku á móti toppliði Lengjudeildarinnar, Aftureldingu á Rafholtsvellinum í Njarðvík í dag þegar 18.umferð var flautuð á. 

Njarðvík komu inn í þennan leik á fjögurra leikja sigurgöngu en topplið Aftureldingar voru að reyna komast aftur á sigurbraut.

„Svekkelsi. Mér fannst þetta vera leikur tveggja liða sem voru mjög þreytt, maður sá það alveg og það var ekki mikið tempó í þessu fannst mér og ekkert rosalega mikil gæði í þessum leik og ég held að Afturelding séu örugglega sammála því." Sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn í dag.

„Þeir drógu langa stráið í lokin og þetta voru ekta svona einstaklingsgæði sem gátu klárað svona leiki og gefið öðru hvoru liðinu þrjú stig og þeir voru með það í dag Afturelding og þessvegna fengu þeir þrjú stig." 

„Við töluðum um það í hálfleik og fyrir leikinn líka að við þyrftum að hafa betri gæði í sendingunum okkar. Við vorum að koma okkur mjög oft í mjög góðar stöður en þá var kannski sendingin í það svæði sem að við erum búnir að vera vinna í léleg."

„Annaðhvort var þetta bara einhver 50/50 bolti við varnarmanninn hjá Aftureldingu eða þá að hún hitti ekki á manninn okkar og það er alveg grátlegt þegar þú ert að mæta liði eins og Afureldingu að þá þarftu að hitta á leikmenn og ef þú gerir það þá þarftu líka að fá þá úr sínum stöðum og þeir þurfa að hlaupa á eftir okkur í staðin fyrir að við séum að hlaupa á eftir þeim, þó svo að það hafi ekki verið mikið raunin í dag en þá fannst mér þetta einkennast af þreytu og kannski eru þessi gæðisleysi þreytunni að kenna."

Nánar er rætt við Gunnar Heiðar Þorvaldsson í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.