Fotbolti.net
20.10.16 - 19:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Bjarni Ólafur skrifar undir nýjan samning við Val (Staðfest)

Auglýsing
Bjarni Ólafur Eiríksson

Bjarni Ólafur Eiríksson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Ólafur Eiríksson verður áfram í herbúðum Vals en þetta staðfesti félagið í kvöld.

Hann hefur leikið með Val allan sinn ferill á Íslandi en hann á að baki atvinnumannaferil sem og landsleikjaferil.

Valsmenn spjölluðu við Bjarna við tilefnið.
„Ég er gríðarlega ánægður með að hafa framlengt samninginn minn. Mér finnst við vera að stefna í rétta átt og höfum verið að gera það síðan Óli Jó og Bjössi tóku við.\"

„Það eru tíu ár síðan ég og Valur unnum titilinn og það væri stórkostlegt að gera það núna.\"

„Það var alltaf minn fyrsti kostur að semja við Val og ég vona að ég klári minn feril hér,\" sagði Bjarni en viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.