Manchester United og Liverpool eigast við á Old Trafford í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en leikurinn hefst klukkan 15:30.
Alisson Becker snýr aftur í búrið hjá Liverpool eftir að hafa verið fjarverandi í fyrstu leikjum tímabilsins vegna meiðsla.
Mohamed Salah er ekki með Liverpool í dag en Divock Origi byrjar inná í hans stað.
David De Gea er í markinu hjá United en það var búist við því að hann yrði ekki með eftir að hann meiddist gegn Svíþjóð í undankeppni EM á dögunum. Það lítur út fyrir að Man Utd fari í þriggja manna vörn.
Manchester United: De Gea, Wan-Bissaka, Young, Maguire, Lindelof, Tuanzebe, McTominay, Fred, Pereira, James, Rashford
Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Matip, van Dijk, Robertson; Henderson, Fabinho, Wijnaldum; Manè, Firmino, Origi
Athugasemdir