Ejub Purisevic, fyrrum þjálfari Víkings Ó, var í dag kynntur hjá Stjörnunni en hann mun sjá um hæfileikamótun í yngri flokkum auk þess sem hann þjálfar 3. flokk karla.
Ejub hætti með Víking Ólafsvík í síðasta mánuði eftir 17 ár hjá félaginu en hann ákvað að flytja til Reykjavíkur.
Hann hafði verið orðaður við mörg lið en nú er ljóst hvert næsta verkefni hans verður.
Ejub mun þjálfa 3. flokk karla hjá Stjörnunni ásamt því að sjá um hæfileikamótun hjá 2. - 4. fl karla.
Athugasemdir