Manchester United hefur þurft að gera breytingu á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Liverpool sem hefst klukkan 15:30.
Axel Tuanzebe átti að byrja leikinn, en hann þurfti að draga sig úr leik í upphitun.
Argentíski varnarmaðurinn Marcos Rojo er kominn inn í liðið í hans stað og er Phil Jones mættur á bekinn.
Það lítur út fyrir það að Manchester United sé með þriggja manna varnarlínu í dag. Harry Maguire, Victor Lindelöf og Marcos Rojo eru þá miðverðir.
Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin.
Sky confirm Tuanzebe is out and Rojo is in. #mufc
— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) October 20, 2019
Athugasemdir