Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 20. október 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn í dag - Heimaleikir hjá Sociedad, Athletic og Sevilla
Martin Ödegaard mætir Betis í dag.
Martin Ödegaard mætir Betis í dag.
Mynd: Getty Images
Fimm leikir fara í dag fram í spænsku La Liga en leikið er í níundu umferð deildarinnar um helgina. Fimm leikir eru leiknir á fimm leiktímum í dag.

Alaves mætir Celta Vigo í morgunleik dagsins en leikurinn verður flautaður á klukkan 10:00. Sociedad tekur á móti Betis í hádegisleiknum, Espanyol fær Villarreal í heimsókn klukkan 14:00 og Athletic Bilbao mætir Valladolid klukkan 16:30.

Levante heilsar að lokum upp á Sevilla í Andalúsíu í lokaleik dagsins. Sociedad, Sevilla, Athletic og Villarreal eru öll í baráttu um Evrópusæti og þrjú þeirra eiga heimaleik í dag.

Spánn: La Liga
10:00 Alaves - Celta
12:00 Real Sociedad - Betis
14:00 Espanyol - Villarreal (Stöð2Sport3)
16:30 Athletic - Valladolid
19:00 Sevilla - Levante (Stöð2Sport3)
Athugasemdir
banner
banner