Danny Welbeck, leikmaður Watford, meiddist á fyrstu mínútu í leik Tottenham og Watford.
Welbeck var í byrjunarliðinu þegar Watford leitaði að sínum fyrsta sigri í deildinni. Welbeck entist ekki lengi inn á vellinum en hann meiddist strax á fyrstu mínútu leiksins. Welbeck meiddist aftan í læri og var enginn í kringum hann þegar hann meiddist.

Welbeck kom til Watford frá erkifjendum Tottenham, Arsenal. Stuðningsmönnum Spurs leiddist ekki að sjá Welbeck meiðast og voru ekki mikið að klappa fyrir honum þegar hann yfirgaf völlinn meiddur.
Welbeck hefur verið gífurlega óheppinn með meiðsli undanfarin ár en tími hans hjá Arsenal einkenndist af meiðslum og fleiri meiðslum. Vonandi fyrir Welbeck snýr hann aftur fyrr en síðar.
Athugasemdir