Daily Mail greinir frá því að Jose Mourinho sé að setja saman nýtt aðstoðarteymi hjá Tottenham.
Rui Faria hefur fylgt Mourinho sem aðstoðarmaður um langt skeið en hann hætti sem aðstoðarmaður hans hjá Manchester United í lok tímabilsins 2017-18.
Faria er nú þjálfari Al-Duhail í Katar og fylgir Mourinho ekki til Tottenham.

Aðstoðarmaður Mourinho hjá Tottenham verður Joeo Sacramento sem kemur frá Lille en þar var hann í sömu stöðu.
Carlos Lalin verður þrekþjálfari, Giovanni Cerra leikgreinandi og Ricardo Formoshino njósnari. Allir voru þeir með Mourinho á Old Trafford.
Nuno Santos verður markvarðaþjálfari en hann fylgir Sacramento frá Lille.
Tottenham heimsækir West Ham á laugardaginn.
Athugasemdir