fös 20. nóvember 2020 12:18
Elvar Geir Magnússon
Freysi: Eitt er víst, ég lagði líf og sál í starfið
Icelandair
Freyr Alexandersson á Laugardalsvelli.
Freyr Alexandersson á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Eins og staðan er í dag er komið að ferðalokum hjá mér með Íslenska landsliðinu," skrifar Freyr Alexandersson í færslu sem hann birtir á Instagram.

Freyr hefur verið aðstoðarþjálfari Erik Hamren hjá íslenska landsliðinu en Hamren er hættur sem landsliðsþjálfari og samningur Freys rennur út um áramótin.

„Eitt er víst, ég lagði líf og sál í starfið. Það er og á að vera það eina sem er í boði þegar þú vinnur fyrir Ísland. Annað veit ég, reynslan sem ég hef áunnið mér mun nýtast Íslandi aftur. Hvenær getur framtíðin ein leitt í ljós," segir Freyr en færsluna má sjá hér að neðan.

Færsla Freys:
“Að ferðalokum finn ég þig sem mér fagnar höndum tveim.”

Haustið 2013 skrifaði ég undir minn fyrsta samnings við KSÍ.
Ekki óraði mér fyrir hvers lags ferðalag biði mín næstu sjö árin.
Breytingin á sambandinu á þessum sjö árum er í raun ólýsanleg en á þessum tíma fékk ég að upplifa og taka þátt í því sem má kalla gullskeið Íslenskrar knattspyrnu.

Ég er 38ára og er búinn að upplifað það að fara á þrjú stórmót í knattspyrnu. Í öll skiptin var ég í stórum hlutverkum sem voru bæði krefjandi en ekki síður gríðarlega gefandi.
Ég mun alltaf minnast þessa tíma með þakklæti og gleði í hjarta.

Með velgengni fylgja alltaf væntingar og sársaukinn sem fylgir því að komast ekki á lokamót er óbærilegur. Það hef ég einnig fengið að upplifa tvisvar sinnum og í bæði skiptin á loka augnablikum leiksin en þessar seinustu fimm mínútur á Puskas Areana munu aldrei gleymast. Spurningin er bara hvað maður á að gera við slíkar tilfinningar, það eina sem hægt er að gera er að læra af þeim. Um það snýst þessi leikur. Að notfæra sér öll augnablik til þess að vera betri.

Eins og staðan er í dag er komið að ferðalokum hjá mér með Íslenska landsliðinu.
Öll þessi reynsla, allar þessar minningar eru mínar. Get ekki lýst því nægilega vel hversu þakklátur ég er fyrir minn tíma.

Leikmenn og starfsmenn sem ég hef unnið með, ég á ykkur svo mikið að þakka. Við ykkur öll get ég bara sagt takk fyrir ferðalagið!

Eitt er víst, ég lagði líf og sál í starfið. Það er og á að vera það eina sem er í boði þegar þú vinnur fyrir Ísland. Annað veit ég, reynslan sem ég hef áunnið mér mun nýtast Íslandi aftur. Hvenær getur framtíðin ein leitt í ljós.

Þangað til næst, TAKK FYRIR MIG!


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner