Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 21. janúar 2022 19:49
Victor Pálsson
Fati grét eftir að hafa gengið af velli í gær
Mynd: EPA
Ansu Fati, leikmaður Barcelona, grét í gær er hann fór a f velli í leik við Athletic Bilbao í spænska Konungsbikarnum.

Fati hefur verið óheppinn með meiðsli í marga mánuði og er aðeins nýbúinn að jafna sig og snúa aftur á völlinn.

Fati var að glíma við meiðsli aftan í læri en hann fór af velli í gær þegar 96 mínútur voru komnar á klukkuna.

Það var ekki brotið á sóknarmanninum sem var þó í baráttu um boltann og fann um leið til vegna meiðsla.

Hann var að vonum gríðarlega sár eftir atvikið og átti í erfiðleikum með að halda aftur af sér.




Athugasemdir
banner
banner