Fotbolti.net
21.02.23 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðmunda Brynja í HK (Staðfest)

Guðmunda Brynja mætt í HK.

Guðmunda Brynja mætt í HK.

Canon

Mynd: HK

Hertz
HK tilkynnti í dag að Guðmunda Brynja Óladóttir væri búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.

Guðmunda er fædd árið 1994 og kemur til liðsins frá KR en hún lék áður með Selfossi og Stjörnunni.
Hún á að baki 278 leiki í meistaraflokki og hefur í þeim skorað 155 mörk. Hún hefur einnig leikið fimmtán leiki fyrir A-landsliðið.

„Guðmunda er frábær viðbót við hópinn og mun hennar reynsla verða liðinu afar dýrmæt í Lengjudeildinni í sumar," segir í færslu HK.

HK endaði í 4. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og hefur styrkt sig í vetur. Fyrr í vetur gengu þær Brookelynn Entz, Telma Steindórsdóttir og Sara Mjöll Jóhannsdóttir í raðir félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.