Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. mars 2021 17:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Leikur sem mun gefa mér martraðir"
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: Getty Images
„Það er erfitt að útskýra hvað gerðist," sagði Mikel Arteta, stjóri West Ham, eftir 3-3 jafntefli við West Ham í ensku úrvalsddeildinni í dag.

West Ham tók 3-0 forystu í leiknum en Arsenal minnkaði muninn í hálfleik. Arsenal mættu miklu betur inn í seinni hálfleikinn og náðu að jafna metin.

„Við vissum hvernig leikur þetta yrði, þeir geta búið til vandræði fyrir hvaða lið sem er. Fyrsta markið er eitthvað sem þeir gera mjög vel en annað og þriðja markið, og færið undir lokin, það er óásættanlegt."

„Við slökktum einhvern veginn á okkur. Það hvernig við spiluðum svo, það var líklega það besta við höfum sýnt á tímabilinu. Við hefðum getað skorað sex eða sjö mörk."

„Við getum ekki verið með tvö andlit... þessi leikur mun gefa mér martraðir því það virðist vera mjög erfitt að stoppa sumt af því sem við höfum verið að gera til að særa sjálfa okkur."

Arsenal er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner