Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 21. apríl 2021 12:10
Magnús Már Einarsson
Leikmenn spænskra félaga klæðast sérstökum bolum
Valencia er eitt af liðunum sem mótmælir.
Valencia er eitt af liðunum sem mótmælir.
Mynd: Getty Images
Leikmenn Valencia, Cadiz, Osasuna, Villarreal, Alaves, Sevilla, Levante, Athletic Bilbao og Real Betis ætla að klæðast sérstökum bolum í upphitun í næstu leikjum liðanna til að mótmæla Ofurdeildinni.

Tólf félög tilkynntu um stofnun Ofurdeildarinnar á sunnudag en Real Madrid, Barcelona og Juventus eru einu félögin sem hafa ekki bakkað út.

„Meistaradeildin - Þú þarft að vinna fyrir því," segir á bolunum en textinn verður bæði á ensku og spænsku.

Þá verða einnig skilaboð á auglýsingaskiltum í kringum völlinn og í stúkunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner