Fotbolti.net
21.04.23 - 11:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ægir fær Bele frá Val (Staðfest)

Bele í leiknum gegn FH.

Bele í leiknum gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Lengjudeildin
Ægir hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar. Þeir fengu reyndar liðsstyrkinn fyrir bikarleikinn gegn FH í gær því Bele Alomerovic er kominn til félagsins frá Val og spilaði leikinn í gær.

Bele er uppalinn hjá Val, hann er átján ára miðjumaður og er sonur Makedónans Fikret Alomerovic sem lék með Val og Víkingi rétt upp úr aldamótum.
Lestu um leikinn: Ægir 1 - 3 FH
„Bele er miðjumaður með góða yfirsýn og mikla sendingargetu, Bele spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið í gær gegn FH og var óheppinn að skora ekki þegar hann smellti boltanum í slána og niður seint í fyrri hálfleiknum," segir í færslu Ægis á Facebook.

Bele kom við sögu í tveimur leikjum með Val í Lengjubikarnum fyrir síðasta tímabil og lék með KV á láni seinni hluta tímabilsins. Ægir endaði í 3. sæti 2. deildar á síðasta tímabili en fékk sæti í Lengjudeildinni þar sem Kórdrengir munu ekki tefla fram liði í sumar.

Komnir
Anton Fannar Kjartansson frá Breiðabliki
Atli Rafn Guðbjartsson frá Selfossi
Baldvin Þór Berndsen á láni frá Fjölni
Bele Alomerovic frá Val
Benedikt Darri Gunnarsson frá Val
Daníel Smári Sigurðsson á láni frá Fjölni
Emil Ásgeir Emilsson frá Víkingi R.
Hrvoje Tokic frá Selfossi
Jóhannes Karl Bárðarson frá Víkingi (á láni)
Kristófer Jacobson Reyes frá Kórdrengjum
Marko Panic frá HK
Stefán Þór Hannesson frá Fram (á láni)
Torfi Már Markússon frá Létti
Þorgeir Ingvarsson frá Magna

Farnir
Arilíus Óskarsson í Stokkseyri
Arnar Páll Matthíasson á láni í Árbæ
Ágúst Karel Magnússon í Þrótt R.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í ÍH
Djordje Panic til Serbíu
Milos Djordjevic til Serbíu
Stefán Blær Jóhannsson á láni í Árborg
Þorkell Þráinsson í Stokkseyri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.