„Af hverju er þessi maður í KH?"

Luis Alberto í leiknum í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Luis Alberto Rodriguez Quintero, leikmaður KH, vakti athygli fyrir frammistöðu sína gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum í gær. Lokatölur leiksins urðu 4-3 fyrir Lengjudeildarliði Gróttu en Alberto skoraði tvö mörk fyrir KH, sem verður í 4. deild í sumar, og hefði getað skorað fleiri.
Lestu um leikinn: Grótta 4 - 3 KH
Rætt var um hann í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag. „Ég er að fara henda inn 200 milljóna tilboði í hann," sagði Hjörvar Hafliðason, stuðningsmaður HK, á léttu nótunum. „Svakalega leit hann vel út. Ég vil fá hann í Kórinn. Sáuði hraðann á honum? Af hverju er þessi maður í KH?"
Alberto er Kólumbíumaður sem gekk í raðir KH skömmu fyrir leikinn en hann hafði komið til Íslands fyrir rúmlega mánuði síðan og þá gengið í raðir Skallagríms. Hann lék með Skallagrími í 1. umferð keppninnar en ákvað að söðla um og ganga í raðir KH eins og fyrr segir fyrr í þessum mánuði. Hann er fæddur árið 2000 og kom frá Kólumbíu þegar hann skipti til Skallagríms.
„Við vorum búnir að skoða hvernig Grótta myndi pressa og sækja. Við lokuðum bara svæðunum þar og svo fengum við góða sendingu frá Kólumbíu, Junior upp á topp. Hann var erfiður fyrir þá, stór og sterkur strákur. Hann hefði átt að skora þrjú. Í stöðunni 1-0 fyrir okkur klúðrar hann einn á móti markmanni," sagði Hallgrímur Dan Daníelsson, þjálfari KH, í viðtali við Fótbolta.net í gær.