Fotbolti.net
21.04.23 - 17:45
Ívan Guðjón Baldursson

Anthony Barry kominn til Bayern (Staðfest)

Anthony Barry kominn til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska stórveldið FC Bayern er búið að ráða Anthony Barry sem aðstoðarþjálfara. Thomas Tuchel vildi ólmur fá hann til sín eftir að hafa starfað með honum hjá Chelsea.

Barry, sem verður 37 ára í maí, lék í neðri deildum enska boltans áður en hann var ráðinn í þjálfarateymi Wigan Athletic. Fyrir þremur árum var hann fenginn yfir til Chelsea til að starfa undir stjórn Frank Lampard og hefur verið þar síðan, auk þess að vera aðstoðarþjálfari Roberto Martinez fyrst hjá belgíska landsliðinu og núna hjá því portúgalska.

Barry hóf landsliðsferilinn sem aðstoðarþjálfari írska landsliðsins.

Chelsea vildi halda Barry í þjálfarateyminu hjá sér en þjálfarinn hreifst mikið af Tuchel þegar Þjóðverjinn var ráðinn til Chelsea og vildi ólmur fara með honum til Þýskalands. Bayern er talið greiða um eina milljón punda til Chelsea fyrir þjálfarann.

Barry hefur verið hrósað í hástert bæði af leikmönnum og knattspyrnusérfræðingum og verður spennandi að fylgjast með þróun ferilsins hjá honum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.