Fotbolti.net
21.05.17 - 16:35
Ármann Örn Guðbjörnsson

Ejub Purisevic: Vill fá að sjá sömu línu frá dómara á bæði lið

Auglýsing
Ejub Purisevic: Vill fá að sjá sömu línu frá dómara á bæði lið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Víkingur Ólafsvík fékk skell á heimavelli í dag en liðið steinlág 3-0 fyrir ÍBV. Ejub Purisevic, þjálfari Víkinga var að vonum mjög svekktur eftir leikinn. Víkingar lenntu manni færri snemma í seinni hálfleik og var þvi lokakafli leiksins mjög erfiður fyrir Ólsara.
"Við byrjuðum leikinn alveg ágætlega og áttum gott færi en eftir að þeir skoruðu þetta fyrsta mark þá var þetta bara erfitt"



Guðmundur Steinn Hafsteinsson bar fyrirliðaband Víkinga í leiknum í dag vegna bekkjarsetu Þorsteins Más Ragnarssonar og fékk hann að lýta rauða spjaldið fyrir tvö gul spjöld. 



"Ég er nokkuð viss um að hann hafi ekki gert þetta viljandi en þetta var klárt brot".



Það var mikil barátta í kringum Guðmund Stein allan fyrri hálfleikinn og fékk hann þrisvar högg í andlitið frá Eyjamönnum. Ejub var ekki paránægður með það og hvernig Gunnar Jarl höndlaði það.



"Hann er núna hjá tannlækninum eftir tvö eða þrjú olnbogaskot í leiknum og ég man ekki til þess að Gunnar hafi áminnt leikmenn ÍBV eða talað við þá. Þetta var alveg klárt brot hjá Guðmundi Stein en eina sem ég bið um frá dómara er að ég fái að sjá sömu línu"



Sjá má viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.