Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 21. maí 2021 19:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gylfi átti mark mánaðarins
Mynd: Getty Images
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson átti mark mánaðarins í apríl hjá Everton.

Markið skoraði Gylfi í 2-2 jafnteflinu gegn gömlu félögunum í Tottenham þann 16. apríl.

Gylfi skoraði úr vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum en hann bætti svo við öðru marki í seinni hálfleiknum. Það var aðeins flottara. Gylfi fékk boltann skoppandi inn í teig og kláraði ótrúlega vel fram hjá Hugo Lloris.

Leikurinn endaði 2-2 þar sem Gylfi skoraði tvennu og Harry Kane gerði slíkt hið sama fyrir Tottenham.

Markið má sjá hér að neðan.

Landsliðshópurinn fyrir vináttulandsleiki í næsta mánuði var tilkynntur í dag en Gylfi er ekki í honum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner