Sölvi Snær Guðbjargarson kom til Breiðabliks frá Stjörnunni á dögunum en liðin eigast einmitt við í kvöld
Það er gleði og gaman í íslenska boltanum um helgina en fimm leikir fara fram í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Breiðablik og Stjarnan mætast á Kópavogsvelli en Sölvi Snær Guðbjargarson gekk í raðir Blika frá Stjörnunni á dögunum, félagaskipti sem voru mikið til umræðu í samfélaginu. Þá er stórleikur helgarinnar í Kaplakrika er FH og KR mætast.
KA hefur unnið þrjá leiki og gert eitt jafntefli í deildinni en liðið er á blússandi siglingu. Liðið spilar við Víking R. á Dalvíkurvelli og þá mætir HK liði ÍA á sama tíma.
Breiðablik mætir svo Stjörnunni klukkan 19:15. Sölvi Snær er væntanlega í hópnum hjá Blikum en hann kom frá Stjörnunni í einhverjum umtöluðust félagaskiptum sumarsins. Bæði lið hafa byrjað tímabilið illa og verður fróðlegt að fylgjast með gang mála á Kópavogsvelli. Valur spilar þá við nýliða Leiknis á meðan Fylkir mætir Keflavík.
Á morgun mætast svo FH og KR í stórleik helgarinnar í Pepsi Max-deildinni.
Það verður þá fjör í Lengjudeildinni. Fram spilar við Þór en Framarar hafa unnið fyrstu tvo leikina til þessa. ÍBV heimsækir þá Aftureldingu í Mosfellsbæinn en hægt er að sjá alla leiki helgarinnar hér fyrir neðan.
Leikir helgarinnar:
föstudagur 21. maí
Pepsi Max-deild karla
18:00 KA-Víkingur R. (Dalvíkurvöllur)
18:00 HK-ÍA (Kórinn)
19:15 Breiðablik-Stjarnan (Kópavogsvöllur)
20:00 Fylkir-Keflavík (Würth völlurinn)
20:15 Valur-Leiknir R. (Origo völlurinn)
Lengjudeild karla
18:00 Afturelding-ÍBV (Fagverksvöllurinn Varmá)
18:00 Fram-Þór (Framvöllur)
19:15 Víkingur Ó.-Kórdrengir (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 Þróttur R.-Selfoss (Eimskipsvöllurinn)
19:15 Grindavík-Fjölnir (Grindavíkurvöllur)
Lengjudeild kvenna
19:15 Grótta-Grindavík (Vivaldivöllurinn)
19:15 KR-ÍA (Meistaravellir)
2. deild karla
19:15 Fjarðabyggð-Magni (Fjarðabyggðarhöllin)
19:15 ÍR-Þróttur V. (Hertz völlurinn)
19:15 Njarðvík-KV (Rafholtsvöllurinn)
19:15 Reynir S.-Kári (BLUE-völlurinn)
19:30 Haukar-Völsungur (Ásvellir)
2. deild kvenna
19:15 Hamar-KM (Grýluvöllur)
3. deild karla
18:00 KFG-KFS (OnePlus völlurinn)
20:00 ÍH-Víðir (Skessan)
4. deild karla - A-riðill
19:00 Snæfell-Berserkir (Stykkishólmsvöllur)
laugardagur 22. maí
Pepsi Max-deild karla
16:00 FH-KR (Kaplakrikavöllur)
Lengjudeild karla
14:00 Grótta-Vestri (Vivaldivöllurinn)
Lengjudeild kvenna
13:00 Haukar-Víkingur R. (Ásvellir)
14:00 Afturelding-HK (Fagverksvöllurinn Varmá)
14:00 Augnablik-FH (Kópavogsvöllur)
2. deild karla
16:00 KF-Leiknir F. (Ólafsfjarðarvöllur)
2. deild kvenna
13:00 Fjölnir-Einherji (Extra völlurinn)
14:00 Sindri-Fram (Sindravellir)
14:00 Álftanes-Fjarðab/Höttur/Leiknir (OnePlus völlurinn)
16:00 Hamrarnir-SR (Boginn)
3. deild karla
14:00 Dalvík/Reynir-Ægir (Dalvíkurvöllur)
14:00 Elliði-Tindastóll (Würth völlurinn)
14:00 Augnablik-Sindri (Fífan)
4. deild karla - B-riðill
14:30 KH-Uppsveitir (Valsvöllur)
4. deild karla - C-riðill
16:00 Hörður Í.-KÁ (Skeiðisvöllur)
4. deild karla - D-riðill
14:00 Kormákur/Hvöt-Vængir Júpiters (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Hvíti riddarinn-Samherjar (Fagverksvöllurinn Varmá)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir