Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 21. maí 2021 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham vill fá Andersen frá Lyon
Joachim Andersen vill spila áfram í úrvalsdeildinni
Joachim Andersen vill spila áfram í úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur vill fá Joachim Andersen frá franska félaginu Lyon í sumar en það er Fabrizio Romano sem greinir frá þessu.

Þessi 24 ára gamli danski landsliðsmaður var á láni hjá Fulham frá Lyon á þessari leiktíð en hann var með betri mönnum liðsins á tímabilinu.

Hann snýr aftur til Lyon í sumar en mörg lið hafa sýnt því áhuga á að fá hann.

Andersen vill vera áfram í úrvalsdeildinni en Tottenham Hotspur er eitt af þeim liðum sem eru í baráttunni um hann.

Arsenal er einnig sagt hafa áhuga og lið frá Ítalíu en hann er metinn á 20 milljónir punda.
Athugasemdir
banner