Þrír leikir fóru fram í 3. deild karla í dag en Dalvík/Reynir er með fullt hús stiga áfram eftir að hafa unnið ÍH, 4-3. Kormákur/Hvöt vann þá þriggja marka sigur á Kára, 3-0.
Dalvík/Reynir þurfti að hafa fyrir hlutunum gegn ÍH. Liðin skiptust á að skora í fyrri hálfleiknum áður en Númi Kárason og Borja Lopez náðu tveggja marka forystu fyrir liðið. Arnar Sigþórsson, sem skoraði sjálfsmark fyrr í leiknum, bætti upp fyrir það með marki úr víti á 81. mínútu.
Það var ekki nóg til að ná í stig í dag og þýðir það að ÍH er enn án stiga á meðan Dalvík/Reynir er á toppnum eftir þrjá leiki.
Kári missti tvo menn af velli með rautt spjald í 3-0 tapi gegn Kormáki/Hvöt. Hilmar Þór Kárason skoraði tvö og Ingibergur Kort Sigurðsson eitt. Kormákur/Hvöt er í öðru sæti með 6 stig.
Sindri lagði þá KFS, 3-2. Þetta var annað tap KFS í deildinni i sumar en Sindri er í 6. sæti með 4 stig.
Úrslit og markaskorarar:
Dalvík/Reynir 4 - 3 ÍH
1-0 Arnar Sigþórsson ('4, sjálfsmark )
1-1 Dagur Óli Grétarsson ('25 )
2-1 Þröstur Mikael Jónasson ('32 )
2-2 Atli Hrafnkelsson ('37 )
3-2 Númi Kárason ('48 )
4-2 Borja Lopez ('65, víti )
4-3 Arnar Sigþórsson ('81, víti )
KFS 2 - 3 Sindri
1-0 Daníel Már Sigmarsson ('6 )
1-1 Robertas Freidgeimas ('44 )
1-2 Borgþór Eydal Arnsteinsson ('50, sjálfsmark )
1-3 Ibrahim Sorie Barrie ('69 )
2-3 Rodrigo da Costa Dias ('90, sjálfsmark )
Kormákur/Hvöt 3 - 0 Kári
1-0 Hilmar Þór Kárason ('44 )
2-0 Ingibergur Kort Sigurðsson ('73 )
3-0 Hilmar Þór Kárason ('86 )
Rautt spjald: Nikulás Ísar Bjarkason ('68, Kári), Hafþór Pétursson ('79, Kári)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir