Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 21. maí 2022 17:18
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu stórkostlegt mark Amandine Henry í úrslitaleiknum
Henry horfir á eftir boltanum
Henry horfir á eftir boltanum
Mynd: Getty Images
Franska stórliðið Lyon er 1-0 yfir gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu en það var Amandine Henry sem gerði markið og er það eitt það flottasta sem sést hefur í Meistaradeildinni.

Henry vann boltann um það bil 40 metrum frá markinu með góðri tæklingu áður en hún stóð upp, lagði boltann fyrir sig til hægri og þrumaði boltanum efst í hægra hornið.

Gjörsamlega óverjandi fyrir Söndru Panos í marki Barcelona og ríkjandi meistarar keppninnar undir.

Sara Björk Gunnarsdóttir er á bekknum hjá Lyon en þetta verður síðasti Evrópuleikur hennar fyrir félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner