Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, hefur opinberað landsliðshóp fyrir leiki gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM. Fyrst spilar Íslands leik gegn Úkraínu í Póllandi og tekur svo á móti heimsmeisturum Spánar á laugardalsvelli.
Ísland mætir Úkraínu í Mielec í Póllandi föstudaginn 5. júní og heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli þriðjudaginn 9. júní kl. 19:00. Ísland mætti Spáni ytra í mars og tapaði þar 0-3, en vann 1-0 sigur á Úkraínu á Laugardalsvelli í apríl. Íslenska liðið er í þriðja sæti riðilsins eftir fjóra leiki með þrjú stig. Spánn er í öðru sæti riðilsins með níu stig og Úkraína er í neðsta sæti án stiga.
Það lið sem endar í efsta sæti riðilsins fer beint í lokakeppni HM 2027, sem verður haldin í Brasilíu, á meðan hin þrjú liðin fara í umspil. Dregið verður í umspilið 18. júní.
Engin breyting er á landsliðshópnum frá síðustu leikjum. Sveindís Jane Jónsdóttir hefur misst af síðustu leikjum með Angel City í Bandaríkjunum en hún er í hópnum.

Hópurinn
Markverðir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan - 29 leikir
Telma Ívarsdóttir - Inter Milan - 12 leikir
Fanney Inga Birkisdóttir - BK Häcken - 8 leikir
Útileikmenn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Brondby IF - 18 leikir, 1 mark
Ingibjörg Sigurðardóttir - SC Freiburg - 84 leikir, 3 mörk
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 146 leikir, 13 mörk
Guðrún Arnardóttir - Hammarby Fotboll - 61 leikur, 1 mark
Arna Eiríksdóttir - Valerenga - 3 leikir
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Valerenga - 27 leikir
María Catharina Ólafsd. Gros - Djurgardens IF Fotboll - 2 leikir
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstads DFF - 63 leikur, 7 mörk
Katla Tryggvadóttir - ACF Fiorentina - 12 leikir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Inter Milan - 62 leikir, 15 mörk
Ída Marín Hermannsdóttir - FH - 7 leikir
Hildur Antonsdóttir - Madrid CFF - 35 leikir, 2 mörk
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - RB Leipzig - 14 leikir, 1 mark
Sandra María Jessen - 1. FC. Köln - 63 leikir, 7 mörk
Birta Georgsdóttir - Genoa CFC - 1 leikur
Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City - 60 leikir, 16 mörk
Hlín Eiríksdóttir - ACF Fiorentina - 58 leikir, 8 mörk
Diljá Ýr Zomers - SK Brann - 25 leikir, 2 mörk
Linda Líf Boama - Kristanstads DFF - 2 leikir
Thelma Karen Pálmadóttir - BK Häcken - 3 leikir
Landslið kvenna - Undankeppni HM, Riðill 3
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. England | 4 | 4 | 0 | 0 | 10 - 1 | +9 | 12 |
| 2. Spánn | 4 | 3 | 0 | 1 | 11 - 2 | +9 | 9 |
| 3. Ísland | 4 | 1 | 0 | 3 | 1 - 6 | -5 | 3 |
| 4. Úkraína | 4 | 0 | 0 | 4 | 2 - 15 | -13 | 0 |