Fotbolti.net
21.06.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson

Ernesto Valverde er nýr stjóri Athletic Bilbao (Staðfest)

Ernesto Valverde.

Ernesto Valverde.

Canon

Mynd: Getty Images

Athletic Bilbao hefur ráðið Ernesto Valverde sem stjóra liðsins. Tekur hann við starfinu af Mercelo Bielsa sem lét af störfum fyrir skömmu.
Valverde er 49 ára gamall Spánverji og stýrði hann síðast liði Valencia á liðinni leiktíð. Hann ákvað hinsvegar að hætta þar eftir að hafa mistekist að koma liðinu í Meistaradeild Evrópu.

Er þetta í annað sinn sem hann tekur við stjórnartaumunum hjá Bilbao, en hann stýrði liðinu á árunum 2003 til 2005.

Áður var hann meðal annars stýrt Olympiacos, Villarreal og Espanyol.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.