Fotbolti.net
21.06.23 - 21:55
Sverrir Örn Einarsson

Pétur Péturs: Þú mátt alveg vera ósammála

Auglýsing
Pétur Pétursson

Pétur Pétursson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Valur mátti gera sér jafntefli að góðu þegar liðið heimsótti Keflavík í níundu umferð Bestu deildar kvenna i Keflavík í kvöld en lokatölur urðu 1-1. Pétur Pétursson þjálfari Vals var til viðtals við fréttaritara Fótbolta.net að leik loknum. Pétur hóf viðtaið á að slá á létta strengi en kom sér síðan að alvöru málsins og ræddi frammstöðu síns liðs.
„Mér fannst við ekki góðar í fyrri hálfleik, komum út á völlinn og vorum ekki að gera hlutina sem við ætluðum okkur að gera og fannst mér þetta slakur fyrri hálfleikur hjá okkur. Við töluðum vel saman í hálfleik og breyttum aðeins hvað við ætluðum að gera. Mér fannst við svo spila mjög vel í seinni hálfleik og áttum svo sem að klára þennan leik.“

Valskonur geta vissulega nagað sig í handarbökin að hafa ekki tryggt sér stigin þrjú en færa má rök fyrir því að Keflvík geti gert það sömuleiðis eftir að hafa átt skot bæði í stöng og slá. Út frá því. Finnst Pétri hægt að tala um ósanngjörn úrslit?

„Já það finnst mér. En þú mátt alveg vera ósammála mér.“
Sagði Pétur sem fékk það svar frá fréttaritara að það væri fegurðin við fótbolta að við gætum verið ósammála um atriði leiksins.

Úrslit leiksins verða að teljast nokkuð óvænt í sögulegu samhengi en þetta sumarið hefur deildin séð þó nokkuð að óvæntum úrslitum. Er bilið á milli liðana að minnka að mati Péturs?

„Já liðin eru að færast nær hvort öðru og sem betur fer eru úrslitin bara svona. Þetta er bara miklu skemmtilegri deild þá í staðin og meiri spenna fyrir alla. Þú ferð ekkert á einhvern völl út í bæ og ert pottþéttur á því að vinna. Þannig er það ekki og það er bara gott fyrir íslenskan kvennafótbolta.“

Sagði Pétur en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.