Fotbolti.net
21.06.26 - 18:30
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Belgíu og Írans: Doku ekki með - Lukaku byrjar

Romelu Lukaku kom með öfluga innkomu gegn Egyptum í síðustu umferð

Romelu Lukaku kom með öfluga innkomu gegn Egyptum í síðustu umferð

Canon

Mynd: EPA

Belgía og Íran takast á í annarri umferð í G-riðli heimsmeistaramótsins klukkan 19:00 á Los Angeles-leikvanginum í Bandaríkjunum í kvöld.
Rudi Garcia gerir fjórar breytingar frá 1-1 jafnteflinu gegn Egyptalandi.

Timothy Castagne, Amadou Onana, Jeremy Doku og Charles De Ketelaere detta út. Doku er ekki með, en það hefur verið talað um að hann sé veikur og að hann vilji vera viðstaddur fæðingu frumburðar síns á meðan De Ketelaere hefur verið að glíma við meiðsli í vikunni.

Þrjár breytingar eru gerðar á liði Írans. Ehsan Hajsafi, Saleh Hardani og Hossein Kanaani koma inn Milad Mohammadi, Shahriyar Moghanlouo og Aria Yousefi.

Báðar þjóðir gerðu jafntefli í fyrstu umferðinni.

Leikurinn er í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.

Belgía: Courtois; Meunier, Ngoy, Mechele, De Cuyper; Raskin, Tielemans; Saelemaekers, De Bruyne, Trossard; Lukaku

Íran: Beiranvand; Rezaeian, Khalilazadeh, Nemati, Kanani, Hardani; Ghoddos, Mohebbi, Ezatolahi, Hajsafi; Taremi
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.