Allir fjölmiðlar landsins vanmátu Rúnar


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

við erum bara eins og ein stór fjölskylda sem er mjög glöð um þessar mundir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram tekur á móti Víkingi í stórleik 11. umferðar Bestu deildar karla annað kvöld á Lambhagavellinum. Bæði lið hafa átt frábært tímabil til þessa en Víkingar eru enn taplausir og í efsta sæti deildarinnar á meðan Framarar eru í því þriðja með 23 stig, einungis tveimur stigum á eftir KR. Fótbolti.net heyrði í Valtý Birni, íþróttafréttamanni og miklum Framara, og spurði hann spjörunum úr.
Valtýr telur Rúnar vera að gera frábæra hluti með fram liðið og hefur verið virkilega ánægður með hans störf. Hann segir Rúnar klárlega vera einn besta þjálfara deildarinnar og að hann hafi sýnt það margoft á sínum þjálfaraferli og sé að gera það enn eina ferðina á þessu tímabili.
„Hann er að gera frábæra hluti með þetta lið og andinn í Fram stuðningsmönnum um þessar mundir er frábær. Við erum bara eins og ein stór fjölskylda sem er mjög glöð um þessar mundir.''
Valtýr nefndi einnig að Rúnar væri með liðið á mun betri stað en allar spár töldu fyrir tímabilið. Þvert á alla fjölmiðla var Fram liðinu hvergi spáð í neina toppbaráttu en með sigri á morgun fara Framarar í 2. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Víkingum og með leik til góða á þá.
„Allir fjölmiðlar landsins vanmátu Rúnar og okkur sem lið fyrir tímabilið. Ég veit að mótið sé alls ekki búið en enginn spáði okkur svona ofarlega og í fyrra vorum við stöðugt gagnrýndir fyrir að spila leiðinlegan fótbolta. Þrátt fyrir það skilaði það nú okkur 5. sætinu í fyrra og núna erum við að gera enn betur.''
Einnig talar Valtýr um breyttan leikstíl Framara sem hefur skilað mikið af mjög skemmtilegum leikjum í sumar, en seinustu tveir leikir liðsins hafa einmitt farið 4-3 fyrir Fram. „Við erum að skora mikið af mörkum og leikstíllinn er stórskemmtilegur,'' segir Valtýr Björn.
Viðtalið er hluti af pistli sem birtist 20. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

við erum bara eins og ein stór fjölskylda sem er mjög glöð um þessar mundir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð






