Fotbolti.net
21.07.23 - 21:15
Haraldur Örn Haraldsson

Alex Freyr: Þurfti að finna ástríðuna fyrir fótboltanum aftur

Auglýsing
Alex Freyr og þjálfari KA Hallgrímur Jónasson

Alex Freyr og þjálfari KA Hallgrímur Jónasson

Canon

Mynd: KA

Alex Freyr Elísson er nýgenginn til liðs við KA á lánssamningi frá Breiðablik út tímabilið. Hann var staddur í Englandi eftir að hafa ferðast með KA liðinu á útileiki í Sambandsdeildinni gegn Connah's Quay í gær. Þar náðist hann í viðtal.

„Ég er fáránlega spenntur fyrir þessu. Þegar KA kom inn í myndina, þá var ég heitastur fyrir því. Bara að koma norður og koma heim þannig séð, ég er uppalinn náttúrulega og fæddur á Akureyri þannig þetta er svona fallegt fyrir fjölskylduna og fyrir sjálfan mig. Ég get bara ekki beðið eftir að byrja og láta mitt af mörkum fyrir KA."

Alex er hægri bakvörður að upplagi en það eru nú þegar 3 leikmenn hjá KA sem spila þá stöðu. Alex segist þó spenntur að mæta í þessa samkeppni.

„Ég er bara kominn til að hjálpa liðinu í deildinni og núna í Evrópu. Svo bara halda öllum á tánnum og sjálfum mér líka, ég vissi að ég vildi ekki fara í eitthvað þægilegt verkefni. Ég vildi halda áfram að þróast sem leikmaður og fara í gott lið, þar sem eru 2-3 góðir bakverðir í liðinu. Ég vissi alveg af því þannig að ég er bara hrikalega spenntur fyrir samkeppninni og ég tel að ég mun gera þá betri og þeir mig."

Alex var keyptur til Breiðabliks frá Fram í vetur en fékk lítið að spila hjá Kópavogs liðinu. Hann segir það vera stór ástæða fyrir því að hann hafi ákveðið að fara á lán.

„Ég þurfti að fá að spila og finna fyrir hlutverki og finna ástríðuna aftur fyrir fótboltanum. Þetta var orðin helvíti erfið brekka að vera ekki inn í myndinni hjá Breiðablik og það er bara eins og það er. Ég þurfti bara aðeins að komast í burtu og fá að spila, vonandi fæ ég bara að spila hérna og vonandi stend ég mig vel, og það er eiginlega bara það eina sem er í boði"

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Þar talar Alex nánar um áframhaldið í deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.