Fotbolti.net
21.07.23 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Blæs á fréttir frá Fabrizio Romano - „Ekkert samkomulag"

Josko Gvardiol.

Josko Gvardiol.

Canon

Mynd: EPA

Max Eberl, yfirmaður fótboltamála hjá RB Leipzig, blæs á fréttir Fabrizio Romano þess efnis að Josko Gvardiol sé svo gott sem kominn til Manchester City.
Romano, sem er yfirleitt talinn mjög áreiðanlegur, sagði frá því á dögunum að það væri allt klappað og klárt með félagaskipti Gvardiol til Man City.

Romano sagði að City og Leipzig væru búin að komast að samkomulagi um kaupverð, en Eberl segir svo ekki vera.

„Það hefur mikið verið skrifað og síðustu upplýsingarnar um Josko komu okkur öllum á óvart. Í augnablikinu er enn langt á milli félaganna," sagði Eberl.

„Það er ekkert samkomulag, ekki nálægt því."

Romano sagði frá því að Gvardiol væri búinn að fara í læknisskoðun en Eberl segir svo ekki vera.

Gvardiol er ekki nema 21 árs gamall og hefur verið lykilmaður í liði Leipzig og landsliði Króatíu undanfarin ár. Hann getur leyst það að spila sem miðvörður og sem vinstri bakvörður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.