"Fékk boltann fyrir utan teig og hugsaði mig svona tvisvar-þrisvar um áður en ég lét vaða"

Grímur Ingi Jakobsson leikmaður Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grímur Ingi Jakobsson leikmaður Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Grótta gerðu sér ferð suður með sjó og mættu þar heimamönnum í Njarðvík á Rafholtsvellinum í Njarðvík þegar 13.umferð Lengjudeildarinnar hélt áfram göngu sinni í kvöld.
Grótta hefur verið að spila glimrandi vel síðustu vikur og verið að klifra upp töfluna og sóttu góðan sigur í Njarðvík.
„Kaflaskiptur leikur, byrjuðum vel og skoruðum snemma en þeir eiginlega taka yfirhöndina seinna í leiknum og sérstaklega í seinni hálfleik þá taka þeir stjórnina en svo náum við að skora og náum að klára þetta í lokin." Sagði Grímur Ingi Jakobsson leikmaður Gróttu eftir leik.
„Það er aldrei neitt gefið í þessum fótbolta, maður þarf að vera með fókus allan leikinn og þeir skora en við náum að svara og þetta er bara liðs frammistaða sem siglir þessu heim."
Grótta náðu yfirhöndinni í síðari hálfleik með stórbrotnu marki frá Grími Inga en hann skoraði af svona 30-35 metra færi.
„Ég hef skorað eitt á móti Leikni, þá skoraði ég eitt fyrir utan teig en þetta var eiginlega sætara því þeir voru búnir að sækja stíft á okkur svona í byrjun seinni og svo fékk ég boltann þarna fyrir utan teigin og hugsaði mig svona tvisvar-þrisvar um áður en ég lét vaða en svo söng hann í netinu."
Nánar er rætt við Grím Inga Jakobsson í spilaranum hér fyrir ofan.







