Fotbolti.net
21.07.23 - 09:35
Elvar Geir Magnússon

Kane ætlar ekki að skrifa undir nýjan samning hjá Tottenham

Harry Kane.

Harry Kane.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Kane, Diaby, Luiz, Gallagher, Höjbjerg, Barcola, Höjlund, Mane og fleiri í slúðurpakkanum þennan föstudaginn. BBC tók saman það helsta. Góða helgi!
Enski sóknarmaðurinn Harry Kane (29) mun ekki skrifa undir nýjan samning við Tottenham og gæti verið opinn fyrir því að fara til Þýskalandsmeistara Bayern München. (Times)

Kane mun skoða það að yfirgefa Tottenham ef félagið tekur tilboði í hann, hann ætlar ekki að þrýsta á að vera seldur. (ESPN)

Aston Villa hefur náð samkomulagi við franska vængmanninn Moussa Diaby (24) hjá Bayer Leverkusen. (Birmingham Live)

Tottenham hefur áhuga á Douglas Luiz (24), brasilíska miðjumanninum hjá Aston Villa, og enska miðjumanninum Conor Gallagher (23) hjá Chelsea. Pierre-Emile Höjbjerg (27) er í viðræðum við Atletico Madrid og yfirgefur væntanlega Spurs. (Mail)

West Ham er nálægt því að vinna baráttuna um Carlos Borges (19), vængmann Manchester City. Borussia Dortmund og Eintracht Frankfurt hafa líka áhuga en Hamrarnir hafa lagt fram 14 milljóna punda tilboð. (Guardian)

Manchester City er að skoða franska sóknarleikmanninn Bradley Barcola (20) hjá Lyon sem möguleika til að fylla skarð Riyad Mahrez. (90min)

Paris St-Germain er einnig með augastað á Barcola. (Le Parisien)

Manchester United er að undirbúa fyrsta tilboð í Rasmus Höjlund (20), framherja Atalanta. PSG hefur einnig áhuga. (Fabrizio Romano)

Spænski markvörðurinn David de Gea (32) hefur hafnað samningstilboði frá Inter sem hefði fært honum 4,3 milljónir punda á ári. (Daily Record)

Senegalski framherjinn Sadio Mane (31) hjá Bayern München hefur náð munnlegu samkomulagi við Al-Nassr í Sádi-Arabíu. (90min)

Marco Silva stjóri Fulham hefur fengið tilboð um tveggja ára samning við Al-Ahli í Sádi-Arabíu sem myndi færa honum 40 milljónir punda. (Sky Sports)

Al-Ahli er einnig að reyna að fá Thomas Partey (30), miðjumann Arsenal (Mail)

Brighton er að ganga frá kaupum á brasilíska varnarmanninum Igor Julio (25) frá Fiorentina. (Telegraph)

West Ham er að leggja aukna áherslu á að reyna að fá enska miðjumanninn James Ward-Prowse (28) frá Southampton og er tilbúið að láta miðjumanninn Flynn Downes (24) á móti. (Guardian)

Ef PSG selur franska framherjann Kylian Mbappe (24) í sumar mun félagið samstundis gera tilboð í Bernardo Silva (28), vængmann Manchester City. (Mundo Deportivo)

Ef Silva fer til PSG gæti Manchester City gert tilboð í ítalska miðjumanninn Nicolo Barella (26) hjá Inter. (TuttoMercato)

Manchester United heldur því opnu að bjóða Jonny Evans (35) lengri samning en Norður-írski varnarmaðurinn kom aftur til félagsins á stuttum samningi eftir að hafa yfirgefið Leicester. (ESPN)

Erik ten Hag stjóri Manchester United hefur sagt enska varnarmanninum Harry Maguire (30) að hann vill ekki að hann yfirgefi Manchester United, þó fyrirliðabandið hafi verið tekið af honum. (TalkSport)

Crystal Palace, West Ham og Leeds hafa áhuga á að fá sóknarmanninn Divock Origi (28) frá AC Milan. Þá ætlar félag Steven Gerrard í Sádi-Arabíu, Al-Ettifaq, að bjóða Belganum risasamning. (Football Insider)

Albanski sóknarmaðurinn Armando Broja (21) ætlar að vera áfram hjá Chelsea og berjast fyrir sæti í liðinu, þrátt fyrir áhuga frá West Ham. (Express)

Nottingham Forest horfir til spænska markvarðarins David Soria (30) hjá Getafe. (Marca)

Burnley er nálægt því að tryggja sér ítalska vængmanninn Luca Koleosho (18) frá Espanyol. (Athletic)

Sevilla er tilbúið að losa marokkóska framherjann Youssef En-Nesyri (26) sem hefur verið orðaður við West Ham. (Express)

Reading hefur komist að samkomulagi við Manchester United um að kaupa velska miðjumanninn Charlie Savage (20). (Football Insider)
Barcola í baráttunni.

Barcola í baráttunni.

Canon

Mynd: EPA

Sadio Mane.

Sadio Mane.

Canon

Mynd: EPA

Divock Origi.

Divock Origi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.