Nökkvi Þeyr kominn til St. Louis (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Bandaríska MLS félagið St. Louis City er búið að festa kaup á Nökkva Þey Þórssyni frá belgíska félaginu Beerschot.
Nökkvi kom að 10 mörkum í 27 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili með Beerschot í belgísku B-deildinni en mun nú reyna fyrir sér vestanhafs.
St. Louis er talið borga um 750 þúsund evrur fyrir Nökkva sem gerir hann að dýrasta leikmanni sem Beerschot hefur selt, ásamt Tarik Tissoudali sem var seldur til Gent fyrir tveimur árum.
Nökkvi er 23 ára vinstri kantmaður, uppalinn á Dalvík og Akureyri. Hann lék fyrir unglingalið Hannover frá 2015 til 2018 áður en hann sneri aftur til Íslands og vakti verðskuldaða athygli á sér, fyrst með Dalvík/Reyni og svo KA.
St. Louis er á toppi vesturhluta MLS deildarinnar með 41 stig úr 23 umferðum, fjórum stigum meira en næstu lið. St. Louis er nýtt lið í MLS deildinni í ár en er vel skipulagt, með 32 ára gamlan Roman Bürki sem fyrirliða. Bürki er fyrrum markvörður Borussia Dortmund, með 233 leiki að baki fyrir félagið.




