Salah vill framlengja við Liverpool - Al-Nassr vill fá Kovacic - Man Utd og Newcastle enn með í baráttunni um Rabiot
   sun 21. júlí 2024 12:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ten Hag vill halda McTominay
Mynd: EPA

Scott McTominay hefur undanfarið verið orðaður í burtu frá Manchester United en Erik ten Hag stjóri liðsins vill eindregið halda skoska miðjumanninum.


McTominay hefur verið orðaður við Fulham og Tottenham en talið er að United hafi sett 30 milljón punda verðmiða á þennan 27 ára gamla miðjumann.

„Ef þú skorar tíu mörk á einu tímabili og stendur þig vel með skoska landsliðinu verður áhugi á þér. Við viljum halda honum því hann er mjög mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Við sáum hvað hann hafði fram að færa á síðustu leiktíð," sagði Ten Hag.

McTominay skoraði 10 mörk í 43 leikjum á síðustu leiktíð en hann á að baki 252 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 29 mörk.


Athugasemdir
banner