Daniel Sturridge hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá Trabzonspor í Tyrklandi.
Hinn 29 ára gamli Sturridge hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Liverpool í sumar.
Sturridge skoraði 67 mörk í 160 leikjum á sex árum sínum hjá Liverpool.
Áður en hann kom til Liverpool spilaði Sturridge með Manchester City, Chelsea og Bolton.
Sturridge var í sumar dæmdur í tveggja vikna bann fyrir að hafa brotið veðmálareglur en hann er búinn að afplána það bann.
Trabzonspor’a hoş geldin @DanielSturridge! pic.twitter.com/GvpUZ3oVPA
— Trabzonspor Kulübü (@Trabzonspor) August 21, 2019
Athugasemdir