Franck Ribery hefur gert tveggja ára samning við ítalska félagið Fiorentina en hann ferðaðist til Flórens í einkaþotu með eiginkonu sinni.
Ribery er 36 ára sóknarleikmaður sem kemur á frjálsri sölu frá Bayern München.
Ribery er 36 ára sóknarleikmaður sem kemur á frjálsri sölu frá Bayern München.
„Ég er ánægður, ég er mættur hingað með fjölskylduna. Ég hef undanfarna viku spjallað við félagið og Luca Toni sem sagði mér að þetta væri frábært félag í fallegri borg," sagði Ribery við lendinguna.
Toni er fyrrum sóknarmaður Fiorentina og Bayern München.
Fiorentina hafnaði í 16. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir