Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 21. ágúst 2019 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Lukaku: Ég, Pogba og Sanchez fáum skammirnar
Paul Pogba og Romelu Lukaku fengu skammir
Paul Pogba og Romelu Lukaku fengu skammir
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku, fyrrum framherji Manchester United á Englandi, segir að hann, Paul Pogba og Alexis Sanchez, hafa fengið skammirnar en enginn annar þegar liðinu gekk illa.

Lukaku yfirgaf Man Utd í sumar og samdi við Inter á Ítalíu en hann ræðir opinberlega dvöl sína hjá enska félaginu.

Belgíski framherjinn fékk mikla gagnrýni fyrir frammistöðu sína hjá félaginu en þeir Alexis Sanchez og Paul Pogba fengu hana einnig. Þeir voru oft blórabögglarnir í liðinu.

„Þeir verða að finna einhvern til að kenna um. Það var Pogba, ég eða Alexis eða stundum við allir," sagði Lukaku.

„Þeir verða alltaf að finna einhvern. Ég opnaði munninn og benti á það að ég væri ekki sá eini sem væri að spila illa. Það voru margir sem spiluðu illa en þeir urðu að finna einhvern blóraböggul."

„Ef þeir vilja kenna mér um þá bara endilega gerið það sem þið þurfið að gera. Þetta lið hefur hæfileika til að gera frábæra hluti og það eru margir ungir og efnilegir þarna en þú þarft ekki bara hæfileika heldur þarf að byggja lið,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner