Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 21. nóvember 2020 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr leik Tottenham og Man City: Kane bestur
Harry Kane var bestur í kvöld
Harry Kane var bestur í kvöld
Mynd: Getty Images
Harry Kane var besti maður vallarins er Tottenham vann Manchester City 2-0 á Tottenham Hotspur-leikvanginum í kvöld en Sky Sports sá um að gefa leikmönnum einkunnir.

Heung-Min Son og Giovani Lo Celso skoruðu mörk Tottenham. Jose Mourinho setti leikinn vel upp og átti City afar erfitt með að skapa sér dauðafæri.

Vörn Tottenham hélt vel en Eric Dier var öflugur og fær 8. Pierre-Emile Hojbjerg og Tanguy Ndombele áttu góðan dag og fá einnig 88 en Harry Kane fær 9. Innkoma Lo Celso verðskuldaði þá einnig 8.

Ederson og Riyad Mahrez voru slakastir. Ederson átti að gera betur í fyrra marki Tottenham en ákvað að æða út í Son. Þá var Mahrez afar slakur fram á við. Þeir fá báðir fjarka.

Tottenham: Lloris (7), Aurier (7), Alderweireld (7), Dier (8), Reguilon (7), Sissoko (7), Hojbjerg (8), Bergwijn (7), Ndombele (8), Son (7), Kane (9)
Varamenn: Lo Celso (8), Lucas Moura (6), Rodon (NA)

Man City: Ederson (4), Walker (5), Dias (5), Laporte (5), Cancelo (5), Rodri (5), Bernardo (5), Torres (5), De Bruyne (5), Mahrez (4), Jesus (5)
Varamenn: Sterling (5), Foden (5)
Athugasemdir
banner
banner