Fjölnota knatthús mun rísa á KR svæðinu í Vesturbæ Reykjavíkur. Mikið hefur verið rætt og ritað um aðstöðuleysi hjá KR og í Reykjavík allri ef út í það er farið.
Tilkoma þessa knatthús er því kærkominn fyrir alla aðstöðu KR.
Tilkoma þessa knatthús er því kærkominn fyrir alla aðstöðu KR.
Af KR.is
Undanfarin ár hefur KR átt í viðræðum og samstarfi við Reykjavíkurborg um uppbyggingu íþróttamannvirkja á KR svæðinu með það að markmiði að bæta aðstöðu félagsins til íþrótta- og félagsstarfs. Nú sér fyrir endann á fyrsta hluta þeirrar vinnu. Á þessu ári var ráðist í vinnu við að skilgreina og forgangsraða uppyggingu íþróttamannvirkja á höfuðborgarsvæðinu og raðaðist fjölnota knatthúss á KR svæðinu hátt í þeirri þarfagreiningu.
Síðastliðinn fimmtudag var samþykkt í borgarráði að að gengið verði til viðræðna við KR um byggingu fjölnota knatthúss, sbr. nýtt hús ÍR í Mjódd, á grundvelli fyrri viljayfirlýsingar KR og borgarinnar. Það er ljóst að með tilkomu nýs fjölnota knatthúss á KR svæðinu verður gerbylting í allri íþróttaaðstöðu KR inga.
KR að fá knatthús. Málið var tekið fyrir á fundi borgarráðs í gær. #fótbolti @KRreykjavik pic.twitter.com/6znlQRhYDK
— Höllin er úrelt (@Nyjahollstrax) November 20, 2020
Athugasemdir