Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. nóvember 2021 10:19
Brynjar Ingi Erluson
Veðbankar telja Zidane líklegastan til að taka við Man Utd
Endurnýja þessir tveir kynni sín?
Endurnýja þessir tveir kynni sín?
Mynd: EPA
Helstu veðbankar á Bretlandseyjum telja Zinedine Zidane líklegastan til að taka við Manchester United.

Það er tímaspursmál hvenær United mun senda frá sér tilkynningu og staðfesta brotthvarf Ole Gunnar Solskjær.

Stjórn United fundaði í fimm klukkustundir í gær eftir 4-1 tap United gegn Watford var niðurstaðan einróma. Solskjær mun missa starfið og er líklegast að Darren Fletcher og Michael Carrick taki tímabundið við búinu.

United er nú í leit að arftaka Solskjær en veðbankar telja Zidane líklegastan til að taka við. Stuðullinn er 1,91 á Betfair að hann taki við og er Brendan Rodgers, stjóri Leicester, næstur með stuðulinn 2,88.

Cristiano Ronaldo, leikmaður liðsins, er óvænt á listanum, en stuðullinn á að hann verði ráðinn þjálfari er 51.

Hverjir eru líklegastir til að taka við?

Zinedine Zidane - 1,91
Brendan Rodgers - 2,88
Darren Fletcher - 7,5
Erik ten Hag - 11
Mauricio Pochettino - 19
Laurent Blanc - 21
Michael Carrick - 23
Ralf Rangnick - 23
Luis Enrique - 26
David Moyes - 41
Cristiano Ronaldo - 51
Athugasemdir
banner
banner