Luis Figo þvertekur fyrir þá mýtu að hann og Pep Guardiola hafi eitt sinn átt í rómantísku sambandi.
Þeir voru nánir er þér léku saman með Barcelona, en Figo segir að það hafi ekkert meira verið en vinskapur.
„Guardiola var frábær vinur," sagði Figo við ICON, en þetta kemur fram hjá Marca. „Hann hjálpaði mér mikið. Við vorum herbergisfélagar, en það var ekkert á milli okkar. Ég er fyrir konur."
Það er alls ekki algengt að fótboltakarlar komi út úr skápnum. Figo hefur skoðun á því hvers vegna það er.
„Fótbolti er mjög grimmur," segir hann. „Þú spilar á hverjum sunnudegi og þú yrðir gagnrýndur fyrir að vera samkynhneigður, ekki fyrir frammistöðuna."
Athugasemdir