Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. janúar 2020 15:20
Magnús Már Einarsson
Björn Bergmann til APOEL á láni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
APOEL á Kýpur hefur fengið íslenska landsliðsmanninn Björn Bergmann Sigurðarson á láni frá Rostov í Rússlandi.

Lánssamningurinn gildir út tímabilið á Kýpur eða þar til í maí.

APOEL er ríkjandi meistari á Kýpur, þeir sitja í 4. sæti sem stendur átta stigum frá toppsætinu.

Þjálfari APOEL er hinn norski Kare Ingebrigtsen.

Björn Bergmann hefur frá árinu 2018 spilað með Rostov í Rússlandi.
Þessi 29 ára gamli framherji hefur leikið 17 landsleiki fyrir Ísland.



Athugasemdir
banner
banner