Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. janúar 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Klopp útskýrir af hverju hann er ekki á samfélagsmiðlum
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segist ekki skilja af hverju fólk er á samfélagsmiðlum.

Klopp var spurður að því í viðtali á Sky Sports af hverju hann notar ekki samfélagsmiðla.

„Ég skil þá ekki og skil ekki af hverju þú ættirað nota þá. Kannski byrja ég að nota þá einn daginn en ég get ekki séð það," sagði Klopp.

„Ég skil ekki af hverju þú ættir að vilja segja öðru fólki, fólki sem þú þekkir ekki, hvað er gott og hvað er ekki gott í augnablikinu."

„Þetta er vandamál sem er líklega hjá minni kynslóð. Ég er of gamall fyrir þetta."

Athugasemdir
banner
banner