Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 22. janúar 2023 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Kjarnafæðismót kvenna: Þór/KA skoraði níu - Sandra gerði þrjú mörk á tæpum fimm mínútum
Sandra María Jessen kann vel við sig í Boganum
Sandra María Jessen kann vel við sig í Boganum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 9 - 0 FHL
1-0 Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('30 )
2-0 Una Móeiður Hlynsdóttir ('31 )
3-0 Sandra María Jessen ('40 )
4-0 Sandra María Jessen ('52 )
5-0 Sandra María Jessen ('55 )
6-0 Sandra María Jessen ('57 )
7-0 Hulda Björg Hannesdóttir ('70 )
8-0 Jakobína Hjörvarsdóttir ('72 )
9-0 Jakobína Hjörvarsdóttir ('86 )

Þór/KA valtaði yfir Fjarðabyggð/Hött/Leikni, 9-0, í Kjarnafæðismóti kvenna er liðin áttust við í Boganum á Akureyri í dag. Sandra María Jessen skoraði fjögur fyrir Þór/KA.

Ísfold Marý Sigrtryggsdóttir kom Þór/KA yfir eftir hálftímaleik og kom mark strax í kjölfarið frá Unu Móeiði Hlynsdóttur. Sandra María bætti við þriðja markinu undir lok fyrri hálfleiks.

Í þeim síðari gekk Þór/KA á lagið og skoraði sex mörk til viðbótar.

Sandra María skoraði þrjú mörk á tæpum fimm mínútum og því með fjögur í leiknum. Hulda Björg Hannesdóttir gerði sjöunda markið áður en Jakobína Hjörvarsdóttir gerði tvö mörk á síðustu átján mínútum leiksins.

Þór/KA er því komið í toppsæti mótsins með 9 stig og betri markatölu en Þór/KA 2.
Athugasemdir
banner
banner