Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. janúar 2023 18:50
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu sigurmark Arsenal - Lagleg hælspyrna frá Nketiah
Eddie Nketiah gat ekki annað en hlegið eftir sigurinn
Eddie Nketiah gat ekki annað en hlegið eftir sigurinn
Mynd: Getty Images
Eddie Nketiah skoraði sigurmark Arsenal í 3-2 sigrinum á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en hann sýndi ótrúleg tilþrif í þessu verðmæta marki heimamanna.

Arsenal sótti í gegnum Leandro Trossard, sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Trossard færði boltann til vinstri á Oleksandr Zinchenko og þaðan kom boltinn inn í teiginn. Martin Ödegaard reyndi skot sem fór af varnarmanni og til Nketiah á fjærstöng.

Boltinn kom á lofti til Nketiah sem bauð upp á skemmtileg tilþrif með því að spyrna boltanum með hælnum í netið.

VAR athugaði með rangstöðu í markinu en það var tvísýnt hvort Zinchenko hafi verið í rangstöðu þegar hann fékk boltann vinstra megin við teiginn. Ekkert var dæmt og stóð sigurmarkið, en það má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hjá Nketiah
Athugasemdir
banner
banner
banner